COCO-MAT
COCO-MAT framleiðir vönduð gæða rúm úr náttúrulegum efnum. COCO-MAT rúmin hafa slegið í gegn víða um heim en þegar fyrirtækið var stofnað árið 1989 var drifkrafturinn að gefa fleirum djúpan og góðan svefn án eiturefna. Stofnendur COCO-MAT nýttu visku náttúrunnar sem leiðarljós í hönnunarferlinu og bjuggu til framúrstefnuleg rúm úr náttúrulegum efnum sem ekki höfðu þekkst áður á markaðnum. Fyrirtækið hefur hefur síðan þá stækkað og orðið að alþjóðlegu vörumerki með verslanir í 17 löndum og hafa rúmin og vörurnar frá COCO-MAT sýnt sig standast tímans tönn. Við mannfólkið sofum að meðaltali 1/3 ævinnar. Markmið COC-MAT er að gera þennan tíma bæði ánægulegri og heilsumsamlegri sem svo hefur áhrif á allt lífið. Ekki nóg með það að fyrirtækið búi til frábær rúm og allt sem þeim fylgir úr náttúrulegum efnum heldur er stefna þess að öll framleiðsla og fyrirtækjarekstur sé kolefnisjafnaður og er endurvinnsluhlutfall COCO-MAT 96%. Fyrirtækið er til fyrirmyndar á öllum sviðum, s.s með því að styðja ýmis hjálparsamtök en einnig með því að sýna viljan í verki og vera leiðandi afl í sjáfbærni á markaðnum.